Þjónustuskilmálar og skilyrði

Upplýsingar um seljanda

4 Árstíðir / Veislugarður ehf.

Kt: 510398-2469

Heimilisfang: Lágmúli 4, 108 Reykjavík (Verslun staðsett í Skipholti 23)

VSK nr: 57610.

Upplýsingar viðskiptavina:

Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s. nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Ábyrgst er að að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Sendingakostnaður

Sendingakostnaður innan Íslands á vörum í netverslun öðrum en blómvöndum er 790 kr. á Dropp afhendingarstaði og 1.350 – 2.350 kr. í heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu.

Sendingarkostnaður á landsbyggðina er 950 kr. á Dropp afhendingarstaði og 1.450 – 2.950 kr. í heimkeyrslu.

Við sendum ekki til annarra landa.

Einnig er hægt að sækja vörur í verslun að kostnaðarlausu.  

Við áskiljum okkur fullan rétt vegna fyrirvaralausra verðbreytinga svo og vegna prentvillna á netsíðu okkar www.4arstidir.is. Öll verð á hefðbundnum vörum og blómum innihalda 24% virðisaukaskatt, verð á matvöru innihalda 11% virðisaukaskatt.

Sendingakostnaður á blómvöndum og blómaboxum samdægurs er 2.500-3.500  kr. eftir því hvert á að senda hann og er valið um sendingu þegar vöndur er pantaður. Við sendum blómvendi einungis heim á höfuðborgarsvæðið og eru þeir sendir á umbeðið heimilisfang á vegum starfsmanna 4 Árstíða.

Einnig er hægt að velja um að sækja blómvendi og blómabox samdægurs milli 11-18 virka daga og 11-16 á laugardögum í verslun að kostnaðarlausu.

Ef senda á blómvönd á öðrum degi en hann er pantaður þarf að taka það fram í dálknum séróskir áður en gengið er frá greiðslu eða senda okkur tölvupóst á elindis@4arstidir.is.

Greitt á netinu:

Hægt er að greiða með Visa og Mastercard. Greiðslan er hröð og örugg í gegnum Salt Pay.

Afhending

Hægt er að fá vörur sendar heim með Dropp á höfuðborgasvæðið eða landsbyggðina og  blómvendi í heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðið á vegum okkar. Pantir þú blómvönd og vörur á sama heimilisfang fer það með sömu sendingu og þá þarf ekki að panta sendingu með Dropp aukalega.

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 1-3 virkir dagar, fyrir vöru sem til er á lager. Ef kemur fyrir að vara er ekki til á lager upplýsum við kaupanda um það og bjóðum sambærilega vöru eða endugreiðslu að fullu.

Blómvendir og blómabox eru afhentir samdægurs ef pantað er fyrir kl 13:00 nema óskað sé eftir öðru í tölvupósti eða dálknum "sérpöntun".

Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu til okkar. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.

Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur eða þegar hún er tilbúin til afgreiðslu í verslun okkar.

Útsölur og vöruskil:

Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Vöruskil:

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun (skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu, parmesan ost eða afskorin blóm og plöntur).

Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 14 daga, varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef vara er keypt í vefverslun og kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er annað hvort gefin út inneingarnóta eftir að varan er móttekin eða hún endurgreitt að fullu.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur.

Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið elindis@4arstidir.is áður en vöru er skilað.

Kvartanir:

Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Aðrar spurningar:

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband í gegnum tölvupóst á 4arstidir@4arstidir.is eða í síma 5668215 á milli kl. 11-18 virka daga.